50L Helíum

205.242 kr
254.500 kr  með VSK
 
 

Innihald og hylki

Helíum er einstakt gas sem nýtist víða í iðnaði vegna sérstöðu eiginleika þess. Það er eðlisléttasta eðalgasið, óbrennanlegt og afar stöðugt. Helíum er mikið notað í heilbrigðisgeiranum, meðal annars í segulómunartækjum (MRI) þar sem það kælir ofurleiðara. Það á einnig lykilhlutverk í rannsóknar- og vísindastarfsemi þar sem hreint og öruggt gasumhverfi er nauðsynlegt.

Í málmiðnaði er helíum notað sem hluti af blöndugasi við suðu, sérstaklega á ál og aðra létta málma, þar sem það tryggir stöðugan boga og hágæða suðuáferð. Þá er það einnig notað í ýmiss konar þrýstiprófanir og leka­leit, þar sem smæð sameindanna gerir það að verkum að helíum fer auðveldlega í gegnum minnstu sprungur og leka.

Helíum í blöðrur er góð skemmtun við ýmis tækifæri og má einnig nota í rannsóknarstarf, t.d við veðurrannsóknir.

Öll helíum gashylki frá Veldix eru:

- með DIN 477-10 ventlum sem eru sömu ventlar og hafa tíðkast á Íslandi á helíum hylkjum.
- stöðluð ISO9809-1
- TPED, skoðuð af tegundastofu og prófuð
- með hlíf yfir ventil með handfangi

Þrýstingur á gashylkjum:

Þrýstingur á gashylkjum sem Veldix selur er miðað við 195 bör +/- 5 bör við 22 gráðu hita innihalds. Þrýstingur á hylkjum lækkar um c.a. 1 bar fyrir hverja 1 gráðu sem hitastigið breytist undir þessum þrýstingi. (PV = nRT). Veldix gerir sér grein fyrir að í köldu umhverfi á Íslandi er möguleiki að hylki mælist niður í 175-180 bara þrýsting.

 

Öryggisblað – SDS