
20L Argon innihald
- ATH: Einungis innihald. Hægt að bæta við hylki hér fyrir neðan.
Argon
Eiginleikar:
Alhliða hlífðargas fyrir suðu, málmframleiðslu, rafeindaframleiðslu og sem einangrun.
Virkar vel sem hlífðargas við TIG og ál-suðu.
Bætir einangrunargildi í gluggum.
Þrýstingur á gashylkjum:
Þrýstingur á gashylkjum sem Veldix selur er miðað við 195 bör +/- 5 bör við 22 gráðu hita innihalds. Þrýstingur á hylkjum lækkar um c.a. 1 bar fyrir hverja 1 gráðu sem hitastigið breytist undir þessum þrýstingi. (PV = nRT)
Veldix gerir sér grein fyrir að í köldu umhverfi á Íslandi er möguleiki að ný hylki mælist niður í 175 bara þrýsting. Veldix hefur fullan hug á því að breyta þessu til framtíðar og bjóða uppá hylki með fullum 200 bara þrýstingi við Íslenskar aðstæður en ljóst er að það næst ekki fyrr en eigin áfyllingarstöð er uppsett á Íslandi.