
20L Súrefni innihald
- ATH: Einungis innihald. Hægt að bæta við hylki hér fyrir neðan.
ATH! Súrefni er væntanlegt í febrúar
Súrefni er mikilvægt í mörgum iðnaðargeirum og hefur fjölbreytt hlutverk, þar á meðal í fiskeldi. Í stálframleiðslu er súrefni notað til að auka hitastig og hraða bráðnunarferli járns. Í efnafræðiiðnaði er súrefni notað til að framleiða sýrur eins og brennisteinssýru og saltpéturssýru. Fyrir umhverfisvæna brunaferla, eins og orkuframleiðslu, er súrefni lykilþáttur til að stuðla að hreinni og skilvirkari brennslu. Í fiskeldi er súrefni nauðsynlegt til að viðhalda heilbrigði og lífvænleika fiska í vatni, sem tryggir hámarks vöxt og vellíðan þeirra. Að auki er það notað í læknisfræði og vatnshreinsun.
Þrýstingur á gashylkjum:
Þrýstingur á gashylkjum sem Veldix selur er miðað við 195 bör +/- 5 bör við 22 gráðu hita innihalds. Þrýstingur á hylkjum lækkar um c.a. 1 bar fyrir hverja 1 gráðu sem hitastigið breytist undir þessum þrýstingi. (PV = nRT)
Veldix gerir sér grein fyrir að í köldu umhverfi á Íslandi er möguleiki að ný hylki mælist niður í 175 bara þrýsting. Veldix hefur fullan hug á því að breyta þessu til framtíðar og bjóða uppá hylki með fullum 200 bara þrýstingi við Íslenskar aðstæður en ljóst er að það næst ekki fyrr en eigin áfyllingarstöð er uppsett á Íslandi.